Vísur leita höfundar

Þessar skemmtilegu vísur fundust hjá starfsmanni sem vann hjá Sparisjóði Glæsibæjarhrepps. Hún man ekki hver samdi þetta og þar sem höfundurinn hefur ekki kvittað fyrir skjalinu þá er ekki vitað hver orti svo skemmtilega. Sennilega hefur þetta verið einhver úr sveitinni.

Kannast nokkur við kveðskapinn, rithöndina eða teikninguna sem fylgir?
Vísurnar eru hér, en það má sjá ljósrit af handskrifaða blaðinu með því að smella á myndina.

 

Ég sé nú fram á framtíð ljóta
fjármagnsskort og skertan kvóta
Æ fleiri hér með harma hljóði
heimta lán úr sparisjóði

 

Þetta brátt mun illa enda
ætíð fleiri bændur lenda
nú á tímum niðurskurðar
með nefið á milli stafs og hurðar

 

Nú flykkjumst fram með brosið breiða
og bjóðum meyjum næturgreiða
Þá ungir jafnt sem aldnir gæjar
fá lán úr sjóðum Glæsibæjar