Við erum öll í sama liði

Í tilefni af Treyjudeginum, sem haldinn er í fyrsta sinn á Íslandi í ár, mætti starfsfólk Heilsuleikskólans Álfasteins í Hörgársveit í treyjum frá hinum ýmsu íþróttafélögum.

Treyjudagurinn er átaksverkefni til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Á þessum degi klæðist fólk uppáhaldstreyjunni sinni og sýnir þannig samstöðu með börnum sem þurfa að takast á við krabbamein og þær miklu breytingar sem fylgja því fyrir þau og fjölskyldur þeirra.

Yfirskrift Treyjudagsins er „Við erum öll í sama liði!“ og það á sannarlega vel við. Það skiptir ekki máli hvaða íþróttaliði við höldum með – þennan dag stöndum við öll saman og sýnum stuðning við mikilvægt málefni.

Starfsfólk Álfasteins tók þátt af krafti og sýndi að samstaða getur verið bæði litrík og skemmtileg.

Viltu kynna þér Treyjudaginn betur?
Nánari upplýsingar um daginn og málefnið má finna á treyjudagur.is

Við erum öll í sama liði.