Verkefnastyrkir til menningarmála

Menningarráð Eyþings hefur auglýst eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings menntamálaráðuneytisins og samgönguráðuneytis við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á svæði Eyþings.

Um er að ræða aukaúthlutun á þessu ári. Þau verkefni sem fá forgang að þessu sinni þurfa að uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

• Verkefni sem tengjast aðventunni

• Verkefni sem auka þátttöku ungs fólks í menningarstarfi

• Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina

• Uppsetning viðburða á fleiri en einum stað

Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2008.  Úthlutun fer fram í október.

Verkefni sem fá úthlutað í aukaúthlutun verða að fara fram á tímabilinu október 2008 – janúar 2009. Hámarksstyrkur aukaúthlutunarinnar er 300.000 kr.

Nánari upplýsingar með því að smella hér og á heimasíðu Eyþings www.eything.is