Varptími fugla

Varptími fugla nær senn hámarki og eru katta- og hundaeigendur hvattir til að taka tillit til þess. Hundar og kettir geta haft neikvæð áhrif á fuglavarp í nágrenni íbúðahverfa og er það á ábyrgð eigenda þeirra.

Kettir geta verið öflugar veiðiklær en eigendum þeirra ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma, til dæmis með því að hengja bjöllur á hálsólar þeirra eða setja á þá kraga. Æskilegt er að halda köttum innandyra til að draga úr neikvæðum áhrifum þeirra yfir varptímann þá sérstaklega seinnipartinn og yfir nóttina þar sem kettir veiða mest í ljósaskiptum.

Hundar geta haft neikvæð áhrif á varpsvæði fugla og eru hundaeigendur beðnir um að sleppa hundum sínum ekki lausum á slíkum svæðum. Jafnframt er bent á að lausaganga hunda er óheimil innan þéttbýlis. Hundaeigendur eru einnig minntir á að hirða alltaf upp eftir hunda sína en umgengni lýsir innri manni.

Að gefnu tilefni er rétt að benda á að hunda- og kattaeigendum ber að sjá svo um að dýr þeirra valdi ekki hávaða, ónæði og óþrifnaði. Það er ekki við hunda eða ketti að sakast að fylgja eðlishvötum sínum heldur er það eigenda að sýna samfélagslega ábyrgð með því að draga úr neikvæðum áhrifum gæludýra sinna. Að lokum er vert að benda á að allir kettir og hundar innan þéttbýlis eru skráningarskyldir hjá sveitarfélaginu skráningareyðublöð eru að finna hér að neðan: