Ungmennaráð Hörgársveitar tók þátt í Ungmennaþingi SSNE

Frá vinstri, Lárus Sólon Biering Ottósson, Hjördís Emma Arnarsdóttir, Jósef Orri Axelsson, Ylva Sól …
Frá vinstri, Lárus Sólon Biering Ottósson, Hjördís Emma Arnarsdóttir, Jósef Orri Axelsson, Ylva Sól Agnarsdóttir, Anna Lovísa Arnarsdóttir og Kolbrún Lind Malmquist

Ungmennaþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) fór fram á Húsavík dagana 14.–15. apríl síðastliðinn. Þingið sóttu um 60–70 ungmenni víðs vegar af Norðurlandi eystra.

Yfirskrift þingsins að þessu sinni var „Efling ungmennaráða á Norðurlandi eystra í hlutverki sínu sem virkur þátttakandi í ákvarðanatöku sveitarfélaga“ og var markmið þess að styrkja hlutverk ungmennaráða og efla rödd ungs fólks í samfélaginu.

Kolbrún Lind Malmquist, starfsmaður ráðsins, fór með ungmennunum á þingið þar sem áhersla var lögð á samvinnu, umræðu og framtíðarsýn ungmennaráða.

Þátttakendur frá Hörgársveit voru fulltrúar ungmennaráðs sveitarfélagsins: Anna Lovísa Arnarsdóttir, Hjördís Emma Arnarsdóttir, Jósef Orri Axelsson, Lárus Sólon Biering Ottósson og Ylva Sól Agnarsdóttir.

Fyrri dagur þingsins einkenndist af samhristingi þar sem þátttakendur komu sér fyrir, nutu samveru og tóku þátt í leikjum og skipulögðum dagskrárliðum.

Seinni dagurinn var tileinkaður formlegri dagskrá með fjölbreyttum erindum og vinnu í hópum. Meðal annars var fjallað um hlutverk ungmennaráða, niðurstöður fyrri ungmennaþinga og starf ungmennaráða í öðrum sveitarfélögum. Þá fengu þátttakendur tækifæri til að vinna saman að hugmyndum og móta næstu skref í starfi ráðanna í sínum heimabyggðum.

Í lok þingsins kynntu fulltrúar ungmennaráða helstu niðurstöður og áherslur sínar, áður en þinginu var slitið með lokaorðum og ályktun. Að því loknu fóru þátttakendur í heimsókn á Eurovision safnið og héldu síðan heim á leið.

Ungmennaþing SSNE er mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk til að koma saman, skiptast á skoðunum og hafa áhrif á þróun samfélagsins í sínum heimahéruðum.

Hörgársveit þakkar SSNE fyrir vel skipulagt ungmennaþing og mikilvægt framlag til eflingar ungmennaráða á svæðinu.