UMSE-stelpur í frjálsum gera það gott

Innanhússmót í frjálsíþróttum eru byrjuð aftur eftir áramótahlé. Meistaramót Íslands fyrir 15-22 ára var um helgina. UMSE sendi harðsnúið líð með 9 keppendur á mótið. Þeir unnu allir til verðlauna.

Steinunn Erla Davíðsdóttir úr Umf. Smáranum vann bronsverðlaun í 60 m hlaupi í flokki 18-19 ára á tímanum 8,44 sek. Hún vann einnig silfurverðlaun í 4x200 m boðhlaupi.

Ein gullverðlaun komu í hlut UMSE-liðsins. Það var Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir úr Samherjum sem náði því í 60 m grindahlaupi á tímanum 9,53 sek. UMSE varð í 6. sæti af 16 í heildarstigakeppni félagana með 69 stig. Þjálfari liðsins er Ari H. Jósavinsson.

Á myndinni eru stelpurnar í UMSE-liðinu. Steinunn Erla er lengst til hægri á myndinni.