Þorrablótin á næsta leyti

Nú er tími þorrablótanna í Hörgárbyggð að renna upp. Næsta laugardag 31. jan. verður þorrablótið á Melum. Það hefst með borðhaldi kl. 21:00. Það verður með hefðbundnu sniði þar sem gestir koma með trog sín yfirfull af dýrindis góðgæti.

Laugardaginn 7. febrúar verður svo þorrablót Hörgárbyggðar haldið í Hlíðarbæ. Brottfluttir sveitungar eru velkomnir. Húsið opnað kl. 20:00. Fordrykkur í boði Húsamiðjunnar. Borðhald hefst stundvíslega kl. 20:30. Miðapantanir miðvikudagskvöld 4. febr. og fimmtudagskvöld 5. febr. í símum 462 6507 (Inga/Maddi) og 461 2441 (Ragna M./Helgi). Forsala aðgöngumiða verður föstudagskvöldið 6. febrúar kl. 20:00-22:00.