Þéttbýlið heitir Lónsbakki

Þéttbýlið í Hörgárbyggð heitir Lónsbakki, skv. nýlegri ákvörðun sveitarstjórnar. Tillaga um það kom frá skipulags- og umhverfisnefnd sveitarfélagsins. Þéttbýlið nær yfir göturnar Skógarhlíð og Birkihlíð, ásamt Lóni, Lónsá, Berghóli I og II, Húsamiðjulóðinni, lóð Þórs- og DNG-húss og lóð leikskólans Álfasteins.

Svæðið með íbúðagötunum hefur ýmist verið nefnt Spyrnuhverfi, Skógarhlíð eða Skógarhlíðarhverfi, en flestar atvinnulóðirnar hafa verið kenndar við Lónsbakka. Nú hefur sem sé verið ákveðið allt svæðið fái heitið Lónsbakki. Hagstofunni hefur verið tilkynnt um þessa nafngift og er þess vænst að hún festist í sessi.