Sýndu hvað í þér býr

Dagana 4. og 5. febrúar verður hér í Eyjafirðinum námskeiðið "Sýndu hvað í þér býr" sem er á vegum Ungmennafélags Íslands (UMFÍ), Bændasamtakanna og Kvenfélagasambands Íslands.

Markmiðið með námskeiðinu er að efla starf aðildarfélaganna og þjálfa einstaklinga til starfa. Þátttakendur í námskeiðinu fá þjálfun í ræðumennsku og fundarsköpum. Námskeiðið er öllum opið.

Þetta námskeið er tilvalið fyrir alla þá sem vilja verða virkari þátttakendur í starfi og umræðum innan síns félags. Fólk sem hefur nýlega hafið störf í stjórnum og nefndum félaga og/eða hefur litla reynslu í slíku á mikið erindi inn á námskeiðið.

Fyrra námskeiðið fer fram í Búgarði 4. febrúar. Það hefst klukkan 18:00 og stendur til 22:00. Seinna námskeiðið fer fram á Rimum í Svarfaðardal 5. febrúar og hefst klukkan 13:00 og stendur til 17:00. Námskeiðsgjald er 5.000 krónur. Áhugasömum er einnig bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi.is og Sigurði í síma 861-3379 og á sigurdur@umfi.is.