Sveitarstjóri segir starfi lausu

Á síðasta fundi sveitarstjórnar var lagt fram bréf frá Guðmundi Sigvaldasyni, þar sem hann segir lausu starfi sínu sem sveitarstjóri. Á fundinum var oddvita veitt umboð til að undirbúa ráðningu eftirmanns Guðmundar. Hann hefur verið sveitarstjóri frá árinu 2010, þegar sveitarfélagið varð til með sameiningu Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar. Þar á undan var hann sveitarstjóri í síðarnefnda sveitarfélaginu frá árinu 2006.