Styrkur til Gásaverkefnisins

Í gær var undirritað samkomulag um styrk frá Ferðamálastofu til þess að koma upp snyrtingum við minjastaðinn á Gásum. Styrkurinn hljóðar upp á 2 millj. kr. og kemur til viðbótar styrk frá sama aðila upp á 3 millj. kr. sem veittur var í fyrra. Samkomulagið var gert við athöfn sem fram fór á veitingahúsinu Friðrik V. á Akureyri.

Smíði snyrtinganna verður lokið í lok apríl og fljótlega eftir það verður þeim komið fyrir á Gásum. Uppsetning snyrtinganna er fyrsti áfangi þess að gera Gásir - lifandi miðaldakaupstaður - að einum fjölsóttasta ferðamannastað á Íslandi.