Skólaakstur boðinn út

Skólaakstur úr Hörgárbyggð í Þelamerkurskóla fyrir tvö næstu skólaár hefur verið boðinn út. Útboðsfrestur rennur út næstkomandi miðvikudag kl. 19:30.

Boðnar eru út fjórar akstursleiðir:

1) Búðarnes - Barká - Langahlíð - Þelamerkurskóli

2) Skriða - Tréstaðir - Þelamerkurskóli

3) Auðnir - Þelamerkurskóli (um Þelamerkurveg)

4) Lónsbakki - Bitra - Þelamerkurskóli

Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Hörgárbyggðar í Þelamerkurskóla. Áskilinn er réttur til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.