Skíðaskóli 1.-4. bekkinga

Nemendur 1.-4. bekkjar hafa nú lokið árlegum skíðaskóla með aðstoð skíðakennara í Hlíðarfjalli. Krakkarnir stóðu sig stórkostlega á skíðunum og sýndu hugrekki, þrautseigju og dugnað þrátt fyrir á köflum mis skemmtilegt veður. Þau náðu þremur dögum í skíðaskóla og áttu svo útivistardag með öllum nemendum skólans í dag þar sem allir skíðuðu frjálst og skemmtu sér vel.