Síldin kemur í Hörgárdalinn

Leikfélag Hörgdæla hefur hafið æfingar á hinu sívinsæla leikriti Síldin kemur og síldin fer eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur.

Leikstjóri er Sunna Borg og tónlistarstjóri er Snorri Guðvarðsson.

Leikritið lýsir lífi farandverkafólki á síldarárunum, gleði þess og sorgum, vinnu, drykkju, ástum og samskiptum við heimafólk.

Rauði þráðurinn er síðan togstreita síldarspekúlantsins við landeigandann sem á jörðina þar sem planið er og er hreint ekki hrifinn af síldarævintýrinu og því fólki sem safnast saman til að taka þátt í því.

Vel á þriðja tug leikara taka þátt í sýningunni og stefnt er á að frumsýna seinni partinn í mars á Melum í Hörgárdal.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á myndinni eru flestir leikaranna í sýningunni ásamt leikstjóranum.