Sílastaðabræður á fullu

Um helgina var Halldór Helgason á Sílastöðum í fréttunum fyrir frækilegan sigur á alþjóðlegu snjóbrettamóti í Bandaríkjunum, sem heitir Winter X-Games.

Hér má sjá myndband af stökkunum sem tryggðu honum sigur, smella hér. Eiríkur, bróðir Halldórs, keppti líka á mótinu og stóð sig vel. Þeir bræður hafa undanfarið verið í fremstu röð snjóbrettakappa í heiminum og eru greinilega ekkert að gefa eftir í þeim efnum. Smelltu hér á heimasíðu þeirra bræðra.