Selveiðar í Hörgá

Í morgun urðu menn sem voru við veiðar í Hörgá varir við sel sem hafði gengið upp í ána. Brugðist var við skjótt enda er getur selur valdið miklum usla í lífríki árinnar og truflað veiðar verulega. Hann er því enginn aufúsugestur. Selurinn var skotinn á færi og hræið fjarlægt.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem vart verður við seli í ánni en reynt er að lágmarka þann skaða sem þeir óhjákvæmilega valda.