Samstarf í leikskólamálum

Nýlega var gengið frá samningi milli Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps um samstarf í rekstri leikskólans Álfasteins. Samningurinn hafði verið í undirbúningi frá því á síðasta ári. Í honum felst að leikskólinn er jafnt fyrir börn úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggð og rekstrarþátttaka er hlutfallslega jöfn miðað við nýtingu. Hörgárbyggð er áfram eigandi húsnæðisins og ber ábyrgð á rekstrinum út á við og gagnvart starfsfólki. Samningurinn gildir frá síðustu áramótum og vegna hans mun fjölga nokkuð í leikskólanum, en á síðasta ári var tekin í notkun viðbygging við hann og þá fjölgaði þar rýmum verulega. Á myndinni er oddvitar sveitarfélaganna, Helgi Steinsson og Axel Grettisson, eftir undirritun samningsins.