Sameining Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar hefur tekið gildi

Sl. laugardag, 12. júní 2010, tók gildi sameining Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, sem dagsett er 7. apríl 2010 og birtist í B-deild Stjórnartíðinda.

Arnarneshreppur varð til árið 1824, en náði þá yfir nokkru stærra svæði en seinna varð. Það heiti leysti af hólmi sveitarfélagsheitið Hvammshreppur, sem náði nokkurn veginn yfir það svæði sem Arnarneshreppur náði yfir síðustu áratugina.

Hörgárbyggð varð til 1. janúar 2001 með sameiningu Glæsibæjarhrepps, Skriðuhrepps og Öxnadalshrepps.

Sameinað sveitarfélag Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar er 894 km2 að stærð. Þar bjuggu alls 606 manns þann 1. desember 2009. Í því eru tvö þéttbýli, Hjalteyri með 44 íbúa og Lónsbakki með 92 íbúa.

Fyrsti fundur sveitarstjórnar hins sameinaða sveitarfélags er fyrirhugaður föstudaginn 18. júní nk.