Sæludagur í sveitinni á laugardaginn

Næsta laugardag, 31. júlí, verður Sæludagur í Hörgársveitinni. Frá klukkan 11 um morguninn fram að miðnætti verður þétt og fjölbreytt dagskrá um alla sveit. Hún hefst á Möðruvöllum þar sem m.a. verður keppt í "sveita-fitness". Frá klukkan 15 verður svo dagskrá á Hjalteyri, þar sem m.a. ýmis nýstárleg keppni fer fram. Þar lýkur dagskránni með dansleik í fiskverkunarhúsinu. Aðrir staðir sem koma við sögu á Sæludeginum eru: Syðri-Reistará, Fornhagi, Hraun, Ytri-Brennihóll og Arnarnes. Dagskrána í heild má lesa með því að smella hér.