Möðruvallaklausturskirkja 140 ára

Á sunnudaginn, 23. september, verður Möðruvallaklausturskirkja 140 ára. Þá verður afmælishátíð í kirkjunni og hefst hún kl. 14:00. Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum, predikar og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur, þjónar fyrir altari. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Helgu Bryndísar Magnúsdóttur, organista.

Afmæliskaffi verður í Leikhúsinu á Möðruvöllum eftir messu.

Komum öll til kirkju og gleðjumst saman.