Miðaldadagar á Gásum um helgina

Miðaldastemming mun ríkja á Gásum helgina 19. og 20. júlí kl. 11-17. Á laugardeginum kl. 12:30 mun Svanfríður I. Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar, bregða sér i gervi héraðshöfðingja og setja kauptíðina á Gásum að fornum sið og sönghópurinn Hymnodia syngur lög frá miðöldum. Að því loknu gefst gestum miðaldadaganna kostur á því að upplifa starfshætti og menningu síðmiðalda.

Kaupmenn og handverksfólk, íklætt miðaldaklæðnaði, mun vinna að leður- og vattarsaumi, málmsteypun, jurtalitun, reipisgerð og spjaldvefnaði. Miðaldasöngur að hætti sönghópsins Hymnodiu mun hljóma um kaupstaðinn ásamt hamarshöggum eldsmiðsins og brennisteinn úr Námafjalli verður hreinsaður. Völva spáir í rúnir fyrir þá sem skyggnast vilja inn í framtíðina og börn á öllum aldri geta reynt sig við bogfimi og steinakast. Í fyrsta skipti svo vitað sé í 800 ár verður leikinn knattleikur eins og hinir fornu kappar og heljarmenni léku á sínum tíma.

Miðaldamenn munu sýna réttu handtökin en áhugasömum gestum gefinn kostur að taka þátt og sýna hvað í þeim býr. Örleikþátturinn Munkar og Mjöður, sem lauslega er byggður á viðburðum og fólki sem nefnt er í hinum fornu ritum, verður frumsýndur á laugardeginum og leikinn tvisvar hvorn dag. Kaupmennirnir og handverksfólkið kemur að sjálfsögðu hlaðið vörum í kaupstaðinn og því viðbúið að perlur, gler, skart, trésverð, skeiðar, litað band og fleiri skemmtilegir hlutir ættaðir frá miðöldum skipti um eigendur. Greiðslukort tíðkuðust vitaskuld ekki á miðöldum og því eru gestir beðnir um að hafa með sér reiðufé (vöruskipti því miður ekki möguleg) hyggist þeir fara vörum hlaðnir frá Gásum.

Veitingastaðurinn Friðrik V mun, í samvinnu við Norðlenska, elda súpu í miðaldastíl sem verður seld gegn vægu gjaldi til styrktar áframhaldandi lifandi miðlunar á Gásum. Auk þess verður boðið uppá leiðsögn báða dagana um þennan merka sögustað.

Aðgangseyrir er 1000 kr. á fullorðinn, 13 ára og yngri borga 250 kr en fyrir þá sem eru minni en miðaldasverð er enginn aðgangseyrir.

Dagskrá markaðarins í heild sinni má finna á www.gasir.is