MENOR - Tímrit Máls og menningar

 

 

 

Örsögusamkeppni MENOR og Tímarits Máls og menningar

 

 

Menningarsamtök Norðlendinga, MENOR, efnir til samkeppni um örsögur í vetur í samstarfi við Tímarit Máls og menningar.  Örsögur eru nefndar örstuttar smásögur, oft með ljóðrænu ívafi.  Þátttaka er heimil fólki á öllum aldri og alls staðar á landinu.  Skilafrestur er til 1. maí næstkomandi.  Þriggja manna dómnefnd velur þá þrjár bestu sögurnar sem hljóta vegleg bókaverðlaun.

Sögurnar á að senda undir dulnefni til:  MENOR / Pósthólf 384 / 602 Akureyri merktar „Örsögukeppni MENOR og Tímarits Máls og menningar 2005“.  Ílokuðu umslagi með sögunni skal fylgja nafn höfundar, heimilisfang og símanúmer.  Umslagið skal merkt með dulnefni höfundar.  Aðeins verða opnuð umslög verðlaunahöfunda.  Nánari upplýsingar má nálgast á www.menor.is

MENOR stóð í fyrsta skipti fyrir keppni á sviði ritaðs máls veturinn 1986-87 þegar félagið og RÚVAK efndu til samkeppni um ljóð og smásögur.  Valin voru fimm ljóð og jafnmargar smásögur til flutnings í svæðisútvarpinu.  Árið 1989 hófst samstarf milli MENOR og dagblaðsins Dags á Akureyri um ljóða- og smásagnasamkeppni, og hefur slík keppni verið árviss viðburður síðan.  Úrval þessara ljóða og sagna var gefið út á bók á 20 ára afmæli MENOR árið 2002.  MENOR hefur líka verið í samstarfi við DV og tímaritið Heima er best, og samkeppni um ritun einþáttunga fór fram árin 1998–2000 í samstarfi við Leikfélag Akureyrar.  Voru verðlaunaþættirnir settir á svið á Akureyri árið 2003.