Málefnasamningur Grósku og H-lista

Fulltrúar Grósku og H-listans hafa undirritað málefnasamning um myndun meirihluta í sveitarstjórn Hörgársveitar fyrir kjörtímabilið 2026–2030.

Í samningnum er lögð áhersla á ábyrga fjármálastjórn, aukið íbúalýðræði og áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins. Meðal helstu áherslumála eru leikskóla- og fjölskyldumál, uppbygging innviða, samgöngur, atvinnu- og nýsköpunarmál, auk heilsu-, íþrótta- og menningarmála.

Jafnframt er lögð áhersla á áframhaldandi uppbyggingu í takt við vöxt sveitarfélagsins, bætt umferðaröryggi, öfluga þjónustu við íbúa og aukið samráð við íbúa sveitarfélagsins.

Málefnasamninginn má nálgast hér að neðan í heild sinni:

Málefnasamningur