Lónsvegur 1 og 3
Lónsvegur 1 og 3, Hörgársveit – kynning vinnslutillögu vegna deiliskipulagsbreytingar
Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á fundi sínum 15. apríl sl. að vísa skipulagstillögu, vegna breytingar á deiliskipulagi Lónsbakka fyrir lóðirnar Lónsveg 1 og 3, í kynningu skv. 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreytingin tekur til lóðanna Lónsvegar 1 og Lónsvegar 3 í Lónsbakkahverfi, Hörgársveit. Breytingin fyrir Lónsveg 1, sem er verslunar og þjónustulóð, felur m.a. í sér stækkun lóðar, stækkun byggingarreits, aukningu hámarks byggingarmagns og að heimilt yrði að byggja 3-4 hæða byggingu á lóðinni. Lóðin Lónsvegur 3, sem er íbúðarlóð, stækkar einnig lítillega og þar yrðu m.a. skilgreindir 2 byggingarreitir í stað eins, byggingarnar yrðu á tveimur hæðum í stað þriggja og heildarfjöldi íbúða fækkar.
Skipulagstillagan er aðgengileg á opnu húsi á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla 18. maí nk. kl. 13-15, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.horgarsveit.is og á skipulagsgáttinni www.skipulagsgatt.is undir málsnr. 512/2026. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til 23. maí nk. til að gera athugasemdir við tillöguna og skulu athugasemdir berast í gegnum skipulagsgátt. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9 eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.
Skipulags- og byggingarfulltrúi