Ljóðakvöld í Verksmiðjunni á Hjalteyri

Um næstu helgi verður haldin Ljóðahátíð í Eyjafirði. Aðstandendur hennar eru Verksmiðjan á Hjalteyri, Populus tremula og Skógræktarfélag Eyfirðinga. Hin árlega Ljóðaganga í eyfirskum skógi verður að þessu sinni hluti hátíðarinnar og nú haldin í Grundarskógi í Eyjafirði.

 Hópur góðskálda heimsækir Eyjafjörð og les ljóð sín fyrir heimamenn og gesti. Eftirtalin skáld koma fram: Guðbrandur Siglaugsson, Kristín Svava Tómasdóttir, Anton Helgi Jónsson, Bjarni Gunnarsson, Þórunn Erlu Valdimarsdóttir og Ísak Harðarson

Dagskráin verður þríþætt. Hún hefst á ljóðakvöldi í Verksmðjunni á Hjalteyri kl. 21:00 föstudaginn 23. september. Á laugardaginn, 24. sept. verður ljóðaganga í Grundarskógi í Eyjafirði kl. 14:00 og að lokum ljóðakvöld í Populus tremula sama kvöld kl. 21:00. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Malpokar eru leyfðir. Ljóðahátíðin er styrkt sérstaklega af Menningarráði Eyþings, Uppheimum og Amtsbókasafninu á Akureyri.