Líf í og við Hörgá.

Oddvinn hér í Hörgárbyggð, Helgi B. Steinsson sem er mikil veiðikló, veiddi hnúðlax í Hörgá við Þelamerkuskóla í síðustu viku.  Hnúðlaxinn var 3 pund.   Hnúðlax er afar sjaldgæfur á þessum slóðum.

 

 

 

Öðru hvoru sjást selir fara upp Hörgána.  Nýlega sást selur við Skóga á Þelamörk.

 

Fuglalíf hefur aukist mjög við ána síðustu ár og má það eflaust þakka duglegum minkaveiðimönnum.  En óvenju margir minkar hafa náðst síðustu misseri. 

                                                                          HAErl.