Land fyrir stafni með augum fortíðar

Land fyrir stafni! Svo nefnist ný sýning á fágætum Íslandskortum sem er á Minjasafninu á Akureyri. Sýningin samanstendur af einstökum landakortum frá 1547-1808. Lengi vel þekktu erlendir kortagerðarmenn lítið til landsins, höfðu mögulega óljósar fregnir af því og færðu hringlaga eyju inn á Evrópukortið. Þegar framliðu stundir breyttist landið úr torkennilegri eldfjallaeyju með sjóskrímslum og furðuverum í kunnuglegt land með stórskorinni strönd. Kortin endurspegla aukna þekkingu Evrópubúa á umheiminum eftir því sem fram líður. Á kortunum fjölgar örnefnum og upplýsingum skráðum af vísindalegri nákvæmni, sem þó ber fagurfræði þeirra ekki ofurliði.

Landakortin eru 76 talsins frá Ítalíu, Hollandi, Englandi, Frakklandi, Tékklandi, Austurríska keisaraveldinu og Þýskalandi. Hvert öðru sérkennilegra og sérstakara, þannig er að finna kort á sýningunni sem aðeins er til í einu öðru eintaki í heiminum.

Kortin eru gjöf þýsku hjónanna dr. Karl-Werner Schulte og Giselu Schulte-Daxboek til íbúa Akureyrar. Þau hafa safnað kortum af Íslandi eða þar sem landið er hluti Evrópukorts um áratuga skeið. Schulte hjónin tóku ástfóstri við Ísland og Akureyri fyrir nokkrum árum og ákváðu að gefa þau til Akureyrar.

Í tengslum við sýninguna verða skemmtilegir viðburðir og fjölskylduleikir. Á Jónsmessu skríða sjóskrímsli á land og taka sér bólfestu á safninu. Einnig verður hægt að gerast landkönnuður og skoða sýninguna með barnakorti og finna fjársjóð á þjóðhátíðardaginn 17. júní. 

Með augum fortíðar.

Í Minjasafninu er einnig óvenjuleg ljósmyndasýning, sem nefnist "Með augum fortíðar; Akureyri ljósmynduð með tækni 19. aldar". Hörður Geirsson hefur undanfarin ár lært aðferðir þær sem notaðar voru við ljósmyndun á 19. öld á svokallaðar votplötur. Hann gegnur skrefinu lengra en flestir ljósmyndarar því hann smíðar einnig myndavélar og færanlegt myrkraherbergi. Á sýningunni gefur að líta myndir sem Hörður hefur tekið af stundarkornum viða um Akureyri og í sumar bætast við nýjar myndir frá nýjum sjónarhornum og gefst í leiðinni tækifæri að fylgjast með ljósmyndaranum að verki.

Minjasafnið á Akureyri er opið alla daga 10-17