Lækkaður hámarkshraði við Þelamerkurskóla
21.08.2025
Loksins! Hámarkshraði á þjóðvegi 1 framhjá Þelamerkurskóla hefur nú verið lækkaður í 70 km/klst. Umferðin er mikil við skólann og hefur hraðinn valdið áhyggjum meðal foreldra og íbúa. Með nýju hraðamörkunum er hættan á slysum minni og aðstæður öruggari fyrir alla sem stunda nám og starf við skólann. Breytingin er skýr skilaboð um að öryggi barna og vegfarenda sé ávallt í forgangi.