Kirkjukórinn hlýtur styrk

Kirkjukór Möðruvallaklausturssóknar hlaut styrk frá Menningarráði Eyþings til verkefnis sem nefnist Davíð og Jónas. Verkefnið er unnið í samvinnu við Leikfélag Hörgdæla, Ferðaþjónustuna á Draflastöðum í Fnjóskadal og tónskáldin Daníel Þorsteinsson, Guðmund Óla Gunnarsson og Sigrúnu Mögnu Þórsteinsdóttur. Verkefnið verður byggt upp á söngdagskrá við ljóð skáldanna Davíðs Stefánssonar og Jónasar Hallgrímssonar. Tónskáldin semja verk við ljóð skáldanna sem ekki hafa verið gerð lög við áður.

Dagskráin verður flutt í vor og verður auglýst síðar.