Jónasarljóð í Jónasarlaug á Þelamörk
10.11.2026
Dagur íslenskrar tungu
Tónlist, ljóð og myndlist í einstöku umhverfi
Á degi íslenskrar tungu, mánudaginn 16. nóvember kl. 18:00, flytur Kór Möðruvallaklaustursprestakalls valin lög við ljóð Jónasar Hallgrímssonar og færir þannig ljóðskáldið okkar góða inn í sundlaugina sem ber nafn hans. Stjórnandi kórsins er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
Nemendur Þelamerkurskóla sýna myndverk sem unnin eru með innblæstri úr ljóðum Jónasar. Verkin munu fljóta í heitu pottunum og skapa sérstakt samspil tónlistar, ljóðlistar, myndlistar og vatns.
Með þessum viðburði viljum við fagna degi íslenskrar tungu, verkum Jónasar og þeirri einstöku sundlaugamenningu sem við eigum.
Viðburðurinn hefst kl. 18 og er aðgangur ókeypis.
Verið velkomin í Jónasarlaug og eigið með okkur notarlega stund.
Þessi viðburður er styrktur af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Viðburðurinn er hluti af dagskrá „Sundlaugasumars 2026” en verkefnið var sett af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.