Jólaball Hörgársveitar

Gleðileg jól kæru foreldrar!

Jólaball Hörgársveitar verður haldið sunnudaginn 27. desember. Skemmtunin hefst klukkan 14.00 í Hlíðarbæ.

Dansað verður í kringum jólatré, flutt verður jólahugvekja og sveinar mæta með gott í poka. Boðið verður upp á kaffi og með því. Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir þriggja ára og eldri.

Fjölmennum og eigum notalega stund saman. Allir velkomnir.

Bestu kveðjur, Jólaballsnefndin:

 Ungmennafélagið Smárinn

 Foreldrafélag Álfasteins

 Foreldrafélag Þelamerkurskóla