Hrísey ekki hluti af Möðruvallaprestakalli.

Á nýafstöðnu kirkjuþingi var samþykkt að Möðruvallaprestakalli verði aftur skipt upp í tvö prestaköll. Möðruvallaprestakall varð til við sameiningu Möðruvalla- og Hríseyjarprestakalls í júlí í fyrra, en þá voru sóknarnefndir prestakallanna tveggja einhuga í andstöðu sinni við sameiningu

Að sögn Árna Svans Daníelssonar, upplýsingafulltrúa Kirkjuþings, verður sami prestur áfram í Hríseyjarprestakalli en ekki liggi enn fyrir hvenær nýr prestur verði ráðinn í Möðruvallasókn. 

(Frétt af vef RÚV)