Hörgársveit er heitið á sveitarfélaginu

Í dag var fyrsti fundur í sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps. Þar var ákveðið að sveitarfélagið skyldi heita Hörgársveit.

Á fundinum var Hanna Rósa Sveinsdóttir kosin oddviti sveitarstjórnar og Axel Grettisson varaoddviti.

Fundurinn hófst með ávarpi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Kristjáns L. Möller. Hann lýsti ánægju sinni með sameiningu sveitarfélaganna og óskaði nýju sveitarfélagi velfarnaðar í framtíðinni.

Á myndinni er sveitarstjórnin ásamt ráðherranum, f.v.: Kristján L. Möller, Hanna Rósa Sveinsdóttir, Sunna Hlín Jóhannesdóttur, Helgi Bjarni Steinsson, Axel Grettisson, Helgi Þór Helgason.