Hörgársveit auglýsir tvær lóðir lausar til umsóknar iconBreyta frétticonEyða frétt
Hörgársveit auglýsir 2 lóðir við Lónsveg lausar til umsóknar.
Stefnt er því að lóðirnar verði byggingarhæfar vorið 2027. Lóðirnar eru samkvæmt nýju deiliskipulagi:
Lónsvegur 1, atvinnustarfsemi:
2.383 m2 lóð fyrir verslun, þjónustu og atvinnustarfsemi. Þriggja til fjögurra hæða bygging. Hámarks byggingarmagn hverrar hæðar er 350 m2 og því er hámarks byggingarmagn á lóðinni 1.050 m2 ef bygging verður á 3 hæðum en 1.400 m2 ef bygging verður á 4 hæðum. Gatnagerðargjald er samkvæmt gjaldskrá Hörgársveitar og er miðað við sept. 2026 kr.19.000.000,- eða 25.000.000,-. Byggingarréttargjald er að lágmarki kr. 5.000,- á fermeter.
Lónsvegur 3, fjölbýlishús:
Stærð lóðar 2.537 m2. Á lóðinni eru tveir byggingarreitir og innan þeirra verður heimilt að byggja fjölbýlihús á 2 hæðum, annarsvegar með 8 íbúðum og hinsvegar 6 íbúðum og því alls 14 íbúðir. Hámarks byggingarmagn samtals er 1.400 m2. Gatnagerðargjald er samkvæmt gjaldskrá Hörgársveitar og er miðað við sept. 2026 er kr. 38.500.000,-. Byggingarréttargjald er að lágmarki kr. 5.000,- á heimilaðan fermeter.
Gjöld vegna veitna eru í öllum tilfellum ekki innifalin.
Lóðunum verður úthlutað samkvæmt reglum um lóðarveitingar í Hörgársveit og þeim skilmálum sem þar koma fram.
Frekari upplýsingar um deiliskipulag, kort og teikningar ásamt reglum um lóðarveitingar má sjá á heimasíðu sveitarfélagsins. Áhugasamir aðilar skulu senda umsóknir á horgarsveit@horgarsveit.is fyrir 25.9.2026 þar sem fram koma þær upplýsingar sem tilgreindar eru í reglum um lóðarveitingar í Hörgársveit. Umsóknaraðilar geta boðið hærra byggingar-réttargjald en lágmark til að auka möguleika á því að fá lóð úthlutað.
Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri, snorri@horgarsveit.