Hlíðarbær – upplýsingar um nýja eigendur og rekstraraðila

Undirritaður hefur verið kaupsamningur um sölu á félagsheimilinu Hlíðarbæ til Reglu musterisriddara á Akureyri, sem kaupa húsið til reksturs félagsheimilis og verður hægt að leigja húsið fyrir viðburði eins og verið hefur.  Frá og með 16. september 2019 taka nýir eigendur við húsinu og er þeim sem áhuga hafa á að leigja húsið eftir þann tíma bent á að hafa samband við Ara Hallgrímsson í síma 893-3209 eða tölvupóstfangið arihall@simnet.is.