Hjalteyri lýsing - deiliskipulag

 

Hjalteyri í Hörgársveit

skipulagslýsing - auglýsing

Unnið er að gerð deiliskipulags fyrir Hjalteyri í Hörgársveit. Í skipulagslýsingu koma fram áherslur deiliskipulagsins og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu. Lýst er fyrirhuguðu skipulagsferli og hvernig kynningu og samráði gagnvart íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum verði háttað við skipulagsgerðina. Skipulagslýsing mun liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 2. nóvember 2015 til og með 16. nóvember 2015. Tillagan verður einnig aðgengileg á heimasíðu Hörgársveitar á www.horgarsveit.is (skipulagsmál-deiliskipulag).

Ábendingar skulu vera skriflegar og berast á skrifstofu Hörgársveitar í Þelamerkurskóla, 601 Akureyri, eða á netfangið snorri@horgarsveit.is í síðasta lagi þann 16. nóvember 2015.

Sveitarstjóri Hörgársveitar