Heilsuleikskólinn Álfasteinn - atvinna

Heilsuleikskólinn Álfasteinn í Hörgársveit óskar eftir að ráða kennara eða starfsfólk með háskólamenntun sem nýtist í starfi í 100 % tímabundna stöðu frá 1. desember nk. með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Einkunnarorð skólans eru “Með sól í hjarta” Mikil áhersla er lögð á gleði og vellíðan barna, næringu, hreyfingu, listsköpun og frjálsan leik. Einnig er unnið með jákvæðan aga (Positive Discipline) og er skólinn á Grænni grein. Við leitum eftir fólki sem hefur gleði og ánægju af að starfa með börnum. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Vinnuumhverfi leikskólans er gott, nýtt húsnæði, góður starfsandi og „Betri vinnutími“ er tekinn í haustfríi, vetrarfríi, dymbilviku, milli jóla og nýjárs, auk þess lokar leikskólinn 14:15 á föstudögum. Starfsfólk Hörgársveitar á kost á lýðheilsukorti í formi árskortar í Jónasarlaug á Þelamörk.

Helstu verkefni og ábyrgð:
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:
Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
Jákvæðni, félagslyndi og góð færni í samskiptum
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Mjög góð færni í íslensku
Hreint sakavottorð

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags leikskólakennara. Starfið hentar öllum kynjum. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna. Til greina kemur að ráða leiðbeinendur fáist ekki kennarar í starfið og eru þá laun samkvæmt kjarasamningi Samabands ísl. sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til og með 18. október nk. og skal umsóknum skilað, ásamt ferilskrá á alfasteinn@horgarsveit.is Upplýsingar gefur Hugrún Hermannsdóttir skólastjóri í síma 460-1760 eða á netfangið alfasteinn@horgarsveit.is