Göngur og réttir á næsta leiti

Í næstu viku, nánar tiltekið miðvikudaginn 8. september, hefjast göngur í Hörgársveit þetta haustið. Þá munu Hörgdælingar smala fram-Hörgárdal að austan og síðan heldur smalamennskan áfram fram á sunnudag, þá lýkur 1. göngum. Heildarfjárfjöldi sem dagsverkum er jafnað niður á í sveitarfélaginu eru 6.542 kindur, sem er svipaður fjöldi og í fyrra, en þó heldur fleiri. Álögð dagsverk eru alls 468, þannig að 14 kindur eru fyrir hvert dagverk.

Réttir eftir 1. göngur í Hörgársveit í haust eru sem hér segir: Staðarbakkarétt, föstudag 10. september kl. 10, Reistarárrétt, Þorvaldsdalsrétt og Þórustaðarétt síðdegis 11. september og Þverárrétt 13. september kl. 10. Nánar má lesa um þetta í fjallskilaboðum (gangnaseðlum) fjallskiladeildanna hér á heimasíðunni, smelltu fyrst hér.