Gatnagerð Lækjarvalla hafin

Byrjað er á gatnagerð í nýju athafnasvæði við Lækjarvelli í Hörgárbyggð. Þar hafa verið skipulagðar um 20 atvinnulóðir. Tæplega helmingur þeirra er á landi í eigu sveitarfélagsins og hefur tveimur þeirra þegar verið úthlutað og fjórar til viðbótar eru í auglýsingu.

Gatnagerðin er í höndum Malar- og efnissölunnar ehf., Björgum. Gert er ráð fyrir henni ljúki í nóvember.