Gásaverkefnið til Hörgárbyggðar

Á fundi sveitarstjórnar Hörgárbyggðar sl. miðvikudag var ákveðið að verða við ósk Héraðsnefndar um að Hörgárbyggð taki að sér stjórnsýslu Gásaverkefnisins.

Hvergi á landinu eru til jafnmiklar minjar um verslun til forna og á Gásum. Þar hafa verið stundaðar fornmleifarannsóknir í nokkur undanfarin ár, en nú er þeim lokið, a.m.k. í bili. Fram eru komnar hugmyndir um að að byggja upp ferðamannastað á Gásum, þar sem m.a. er ætlunin að verði lifandi sýning svo að hægt sé að upplifa staðinn með því að sjá, hlusta og taka þátt. Alþjóðaferðamálaráðið telur að um 37% allra orlofsferða í heiminum séu menningartengdar og að vægi slíkrar ferðaþjónustu muni aukast á næstu árum.