Fundur um Staðardagskrá 21

Fyrr í mánuðum funduðu þeir sem hafa með Staðardagskrá 21 að gera hjá sveitarfélögum á Norður- og Austurlandi. Fundurinn var haldinn í Þelamerkurskóla. Hann var á vegum verkefnisstjóra Staðardagskrár 21 á Íslandi. Fundarmenn voru 12 frá Fjarðabyggð til Blönduóss.

Á fundinum var farið yfir helstu verkefni að undanförnu og á næstunni. Rætt var um skipulagsmál, "réttlætisbæi", væntanlega ráðstefnu um tengsl umhverfis og heilsu, námskeið um umhverfismál fyrir starfsmenn sveitarfélaga o.m.fl.

Sveitarstjórn Hörgárbyggðar samþykkti Staðardagskrá 21 fyrir sveitarfélagið í maí 2006, sjá hér. Vinna á grundvelli hennar er hafin.