Fundir um þjóðlendumál

Fundur um framkomnar kröfur ríkisins um þjóðlendur á suðurhluta Mið-Norðurlands verður fimmtudaginn 17. apríl nk. í Hlíðarbæ kl. 13:30. Slíkur fundur verður líka í Freyvangi kl. 20:30 sama dag, þannig þeir viðkomandi landeigendur og aðrir áhugasamir um málið sem ekki komast á fundinn í Hlíðarbæ eru hvattir til nýta sér Freyvangsfundinn. Fundirnir byrja á umræðum um málið með þátttöku fulltrúa Landssamtaka landeigenda. Síðan gefst landeigendum kostur á að ræða við þá lögfræðinga sem þeir kjósa um málið og veita þeim umboð sitt í málinu.

Kröfur ríkisins um þjóðlendur í austurhluta Hörgárbyggðar og víðar á Mið-Norðurlandi má lesa á heimasíðu óbyggðanefndar, www.obyggdanefnd.is. Frestur til að lýsa kröfum til eignarréttinda innan kröfusvæðisins er til mánudagsins 30. júní 2008.

 

Nauðsynlegt er að hver landeigandi semji við lögfræðing til að annast þessa kröfulýsingu og aðra hagsmunagæslu í málinu. Eftirtaldir lögfræðingar hafa haft samband um það mál: Friðbjörn Garðarsson hrl. (lögfræðistofan Regula), Gunnar Sólnes hrl., Ólafur Björnsson hrl. og Páll Arnór Pálsson, hrl. E.t.v. eiga fleiri lögfræðingar eftir að slást í þennan hóp.

 

Á ofannefndri heimasíðu óbyggðanefndar eru allar almennar upplýsingar um þetta mál og er mælt er með því að landeigendur kynni sér þær eftir því sem tök eru á.

 

Báðir fundirnir eru ætlaðir viðkomandi landeigendum og öðrum áhugamönnum um málið í Hörgárbyggð, Eyjafjarðarsveit og Akureyrarbæ, eftir því sem best hentar hverjum og einum.

 

Lögð er áhersla á að hver landeigandi láti alls ekki undir höfuð leggjast að lýsa kröfum sínum til réttmætra eignarréttinda innan þess landsvæðis sem ríkið hefur nú gert kröfur til.Eftir því sem næst verður komist mun ríkið greiða allan eða nær allan kostnað við hagsmunagæslu landeigenda. Í því sambandi hefur óbyggðanefnd þó vakið athygli á að við mat á því hvort um nauðsynlegan málskostnað hafi verið að ræða sé henni heimilt að líta til þess hvort aðilar, sem svipaðra hagsmuna eiga að gæta, hafi sameinast um að nýta sé aðstoð sömu lögmanna og annarra sérfræðinga, enda rekist hagsmunir ekki á.