Fundargerð - 19. ágúst 2013

Mánudaginn 19. ágúst 2013 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á Staðarbakka. Mættir eru til fundarins: Aðalsteinn H Hreinsson, Jósavin Gunnarsson, Stefán L Karlsson, Helgi Steinsson og Guðmundur Skúlason.

 

Eftirfarandi bókað á fundinum:

 

1.    Tímasetning gangna: Í Hörgársveit verða 1. göngur frá miðvikudeginum 11. til sunnudagsins 15. september, nema á Barkárdal þar verða þær sunnudaginn 22. september. Aðrar göngur eru víðast hvar um viku eftir 1. göngur.

2.    Borist hafa beiðnir frá eigendum sauðfjár á jörðunum: Árhvammi og Bitru um að vera undanþegnir fjallskilum í haust, þar sem þeir hafi haft allt sitt sauðfé í fjárheldum girðingum sumarlangt. Fjallskilanefnd samþykkir beiðnirnar. Alls eru þetta 73 kindur, sem ekki koma til álagningar fjallskila á þessum tveimur jörðum.

3.    Álagning fjallskila í sveitarfélaginu. Heildarfjöldi gangnadagsverka í Hörgársveit er 468. Alls eru 7.135 kindur í sveitarfélaginu samkvæmt síðustu forðagæsluskýrslu, sem er fækkun um 76 kindur frá árinu áður. Fjárfjöldi sem dagsverkum er jafnað niður á í sveitarfélaginu eru 7.063 kindur, 73 kindur koma ekki til útreiknings fjallskila, sem voru innan girðingar, samanber 2. lið fundargerðarinnar Að jafnaði eru flestar kindur í dagsverki í Glæsibæjardeild 25,4. Í Öxnadalsdeild eru þær 19,4. Í Arnarnesdeild eru 18,7 í dagsverkinu. Fæstar kindur eru í dagsverki í Skriðudeild 13,3 kindur. Á einstökum gangnasvæðum eru flestar kindur í dagsverki í Laugalandsheiði og Hlíðarfjalli 30,1 en fæstar á gangnasvæðinu Hafrárdalur / Öxnhólsfjall 8,1 kind. Hörgársveit mun kosta 39 dagsverk og Akrahreppur 21 á eyðilendum þar sem enginn sleppir. Fjallskilaboð verða send sauðfjáreigendum og þau munu líka verða aðgengileg á heimasíðu Hörgársveitar.

4.    Rætt var um flutning úrtínings á komandi hausti. Ákveðið að hafa hann með svipuðu sniði og verið hefur síðustu haust, það er að dregið skuli upp á hverri auka- og heimarétt í sveitarfélaginu og ber réttarstjórum að tilkynna um aðkomufé til eiganda innan Hörgársveitar, sem ber þá að sækja sitt fé. Sé um utansveitarfé að ræða skal tilkynna það til eiganda eða fjallskilastjóra viðkomandi fjallskiladeildar í Hörgársveit.

  

Fleira ekki bókað og fundi slitið kl. 21:30.