Fundargerð - 17. ágúst 2015

Fjallskilanefnd Hörgársveitar

 15. fundur

Fundargerð

 

Mánudaginn 17. ágúst 2015 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar í skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

 

Fundarmenn: Aðalsteinn H. Hreinsson, Jónas Þór Jónasson og Sigríður Kristín Sverrisdóttir nefndarmenn, svo og Jósavin Gunnarsson og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.

 

Þetta gerðist:

 

1.        Undanþágur frá fjallskilum

Fram kom að borist hefðu beiðnir frá jörðunum Árhvammi og Bitru um að vera undanþegnar fjallskilum í haust, enda hafi fé þaðan verið í fjárheldum girðingum sumarlangt, sbr. samþykkt nefndarinnar 6. júlí 2015. Samtals er um að ræða 68 kindur.

Fjallskilanefnd samþykkti framkomnar beiðnir um undanþágur frá fjallskilum haustið 2015.

 

2.        Álagning gangnadagsverka

Lögð fram drög að álagningu fjallskila haustið 2015. Heildarfjöldi gangnadagsverka er 469. Samkvæmt síðustu forðagæsluskýrslu er alls um að ræða 7.513   kindur, sem er fjölgun um 64 frá fyrra ári. Af þeim voru 68 kindur innan girðingar í sumar, þannig að til álagningar vegna fjallskilanna koma 7.445 kindur.  Skv. drögunum eru að jafnaði 27,6 kindur í dagsverki í Glæsibæjardeild, í Arnarnesdeild 17,9 kindur, í Skriðudeild 17 kindur og í Öxnadalsdeild 12,4 kindur.

Fjallskilanefnd beinir því til sveitarstjórnar að við álagningu fjallskila 2015 verði gerð sú breyting frá því sem verið hefur að ekki verði lögð á gangnadagsverk í eftirleitum en ef vitað er um fé að loknum öðrum göngum skuli gangastjórar á viðkomandi svæði samt sem áður sjá til þess að það verði sótt. 

Fjallskilanefnd samþykkti framlögð drög að álagningu fjallskila haustið 2015, með þeim breytingum sem gerðar voru á þeim á fundinum.

 

3.        Flutningur á fé sem kemur fram utansveitar

Fjallskilanefnd samþykkti að flutningur úr Árskógsrétt verði færður til fyrra horfs og verði lagt á sem dagsverk hjá viðkomandi flutningsaðila.

 

4.        Flutningur á utansveitarfé úr heimaréttum

Fjallskilanefnd samþykkti að þar sem rekið er í heimarétt skuli viðkomandi gangnastjóri sjá um að koma utansveitarfé í skilarétt.

 

5.        Búfjártölur frá Matvælastofnun

Fjallskilanefnd bendir á að í þeim búfjártölum sem bárust Hörgársveit vantaði tölur um fjölda sauðfjár á nokkrum bæjum í sveitafélaginu. 

Fjallskilanefnd samþykkti að beina því til sveitarstjórnar að gera athugasemd við þessa skýrslugjöf frá stofnuninni.

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 23.55.