Fundargerð - 15. ágúst 2017

Fjallskilanefnd Hörgársveitar

 20. fundur

 Fundargerð

 

Þriðjudaginn 15. ágúst 2017 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

 

Fundarmenn: Aðalsteinn H. Hreinsson, Jónas Þór Jónasson og Sigríður Kristín Sverrisdóttir nefndarmenn, svo og Jósavin Gunnarsson og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.

 

Þetta gerðist:

1.        Undanþágur frá fjallskilum

Fram kom að borist hefðu beiðnir frá jörðunum Árhvammi, Bitru og Steinkoti um að vera undanþegnar fjallskilum í haust, enda hafi fé þaðan verið í fjárheldum girðingum sumarlangt, sbr. samþykkt nefndarinnar 10. júlí 2017. Samtals er um að ræða 78 kindur.

Fjallskilanefnd samþykkti framkomnar beiðnir um undanþágur frá fjallskilum haustið 2017.

2.        Álagning gangnadagsverka

Lögð fram drög að álagningu fjallskila haustið 2017. Heildarfjöldi gangnadagsverka er 471. Samkvæmt síðustu forðagæsluskýrslu er alls um að ræða 7.494   kindur, sem er fækkun um 10 frá fyrra ári. Af þeim voru 78 kindur innan girðingar í sumar, þannig að til álagningar vegna fjallskilanna koma 7.416 kindur.  Skv. drögunum eru að jafnaði 24,4 kindur í dagsverki í Glæsibæjardeild, í Arnarnesdeild 18,4 kindur, í Skriðudeild 16,7 kindur og í Öxnadalsdeild 7,7 kindur.

Fjallskilanefnd samþykkti framlögð drög að álagningu fjallskila haustið 2017, með þeim breytingum sem gerðar voru á þeim á fundinum.

3.        Flutningur á utansveitarfé úr heimaréttum

Fjallskilanefnd samþykkti að þar sem rekið er í heimarétt skuli viðkomandi gangnastjóri sjá um að koma utansveitarfé í skilarétt viðkomandi deildar.

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 21:35