Fundargerð - 11. september 2012

Fundur félagsmála- og jafnréttisnefndar Hörgársveitar 11.09.2012

 

Mætt voru: Ásgrimur Bragi Konráðsson, Elisabeth Jóhanna Zitterbart, Jóhanna María Oddsdóttir, Sigmar Bragason og Sunna Hlín Jóhannesdóttir

 

Fundur settur klukkan 20.00

 

1. Formaður nefndarinnar leggur fram til kynningar boðsbréf  á landsfund  jafnréttisnefnda sveitarfélaga sem haldinn verður á Akranesi þann 14.09.2012

 

2.Tekinn verður til umfjöllunar beiðni jafnréttisstofu um afhendingu á skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála í Hörgársveit. Ákveðið var að félagsmála- og jafnréttisnefnd Hörgársveitar fari í ákveðna gagnaöflun til að auðvelda sveitarstjóra vinnslu þessarar skýrslu. Í þeim tilgangi verður sent út bréf til stofnananna þriggja í Hörgársveit, sem hafa sett sér jafnréttisáætlun, þar sem beðið er um ákveðnar upplysingar.

Bréfið má sjá í viðhenginu.

Félagsmála- og jafnréttisnefnd Hörgársveitar leggur siðan til að sveitastjórinn skili jafnréttisstofu umbeðnri skýrslu eigi síður en 31.10.2012.

 

3.Fleira var ekki rætt.

      

Fundi slitið  klukkan 21.35