Fundargerð - 11. maí 2010

Þriðjudaginn 11. maí 2010 kl. 20:00 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgárbyggðar saman til fundar í Þelamerkurskóla.

Á fundinum voru: Aðalheiður Eiríksdóttir, Birna Jóhannesdóttir, Guðmundur Víkingsson og Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri.

 

Þetta gerðist:

 

1. Staðartunga, tillaga að deiliskipulagi vegna íbúðarhúss

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi vegna nýs íbúðarhúss í Staðartungu. Tillagan er eftir Guðbjörgu Guðmundsdóttur, og er dagsett 11. maí 2010.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi tillaga að deiliskipulagi vegna íbúðarhúss í Staðartungu verði auglýst í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1998.

 

2. Lónsbakki, deiliskipulag

Á fundinn kom Árni Ólafsson, arkitekt, og lagði fram fyrstu hugmynd að vegtengingum Hringvegarins við íbúðabyggðina og fyrirtækin á Lónsbakka. Útfærsla þeirra er 1. áfangi í gerð deiliskipulagstillögu fyrir svæðið.

Ákveðið var að haft verði til náið samráð við íbúa og fyrirtæki á svæðinu við gerð deiliskipulagstillögunnar.

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 21:35.