Fundargerð - 07. apríl 2016

Félagsmála- og jafnréttisnefnd Hörgársveitar

 

11. fundur

 

Fundargerð

 

 

Fimmtudaginn 7. apríl 2016 kl. 15:00 kom félagsmála- og jafnréttisnefnd Hörgársveitar saman til fundar í skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

 

Fundarmenn: Bragi Konráðsson, Andrea R. Keel og Ingibjörg Stella Bjarnadóttir í félagsmála- og jafnréttisnefnd og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.

 

Þetta gerðist:

 

1.        Jafnréttisáætlun fyrir Hörgársveit 2014-2018

Jafnréttisstofa sendi sveitarfélaginu athugasemdir og ábendingar við þá jafnréttisáætlun sem nefndin samþykkti á síðasta fundi.  Farið var yfir athugasemdirnar og jafnréttisáætluninni breytt í samræmi við þær.

Félagsmála- og jafnréttisnefnd samþykkti fyrir sitt leyti framlagða jafnréttisáætlun fyrir Hörgársveit 2014-2018 með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði tekin sem fyrst til afgreiðslu og staðfestingar að nýju.

 

 

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 15.50