Fundargerð - 06. júlí 2015

Fjallskilanefnd Hörgársveitar

 14. fundur

Fundargerð

 

Mánudaginn 6. júlí 2015 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

 

Fundarmenn: Aðalsteinn H. Hreinsson, Jónas Þór Jónasson og Sigríður Kristín Sverrisdóttir nefndarmenn, svo og Jósavin Gunnarsson og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.

 

Þetta gerðist:

 

1.        Tímasetning gangna haustið 2015

Fjallskilanefnd samþykkti tímasetningu gangna haustið 2015.

Fjallskilanefnd samþykkti að 1. göngur haustið 2015 verði víðast hvar frá miðvikudeginum 9. september til sunnudagsins 13. september og að aðrar göngur verði víðast hvar viku síðar.

 

2.        Álagning gangnadagsverka

Rætt um fyrirkomulag á gerð draga að fjallskilaboðum.

Fjallskilanefnd samþykkti að gerð draga að fjallskilaboðum fari fram á skrifstofu sveitarfélagsins og Jósavin Gunnarsson sjái um Arnarnesdeild.

 

3.        Undanþágur frá fjallskilum

Fjallskilanefnd samþykkti að þeir sem hafa allt sitt fé í sauðheldum girðingum allt sumarið, geti sótt um til fjallskilanefndar að vera undanþegnir fjallskilum.

 

4.        Viðhald fjárrétta

Rætt um viðhald fjárrétta.

Fjallskilanefnd samþykkti óska eftir að lagfæringar verði gerðar í Gloppurétt. 

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 21:45