Fulltrúar Hörgársveitar á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2026

Fulltrúar Hörgársveitar á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2026

Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 fer fram dagana 8.–9. október í Vör, farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Skarfabakka í Reykjavík.
 
Fjármálaráðstefnan er árlegur vettvangur þar sem fjallað er um helstu málefni sveitarfélaga, þar á meðal fjármál, rekstur og stjórnsýslu. Ráðstefnan veitir jafnframt tækifæri til fræðslu, samtals og samvinnu milli sveitarfélaga.
 
Frá Hörgársveit sækja ráðstefnuna Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri, Sunna María Jónasdóttir, oddviti sveitarstjórnar, og Katrín Olsen Björnsdóttir, fulltrúi í sveitarstjórn.
Hægt er að fylgjast með ráðstefnunni í beinu streymi hér: